Mánudagur, 17. september 2007
SÍBS „lestin“ um landið 6 dagur ferðarinnar
Ásgeir ræðir við þórshafnarbúa
Þrátt fyrir hálku og stundum hausthryssing þá hefur SÍBS lestin haldið sínu strike.
Í dag Mánudag 17. september var lestin á Raufarhöfn með mælingar og fræðslu frá kl:11:00-14:00 og á Þórshöfn með mælingar og fræðslu kl:16:00-18:00
Mjög vel var mætt í mælingarnar í dag og stóð því vinna á Þórshöfn fram yfir kl. 7. Um eða yfir 100 manns voru mældir á þessum tveimur stöðum.
Á morgun Þriðjudagur 18. september verður lestin með mælingar og kynningar á starfi SÍBS og aðildarfélaga þess samkvæmt áætlun á:
Vopnafirði Kl: 10:00 til 13:00 Skráning til kl. 11:30 og síðan á
Egilsstöðum Kl: 16:00 til 19:00 Skráning til kl. 17:30
Boðið er upp á mælingar á öndun, blóðþrýstingi og blóðfitu, í samvinnu við heilsugæsluna og starfsfólk hennar á hverjum stað.
Jafnframt mælingum fer fram kynning á starfi SÍBS og aðildafélaganna ásamt því að hitta umboðsmenn Happdrættis SÍBS.
Það er ekki oft sem farið er um landið og boðið upp á svona ókeypis mælingar, og því ættu þeir sem eru á viðkomustöðum SÍBS-lestarinnar að nýta sér þessa þjónustu.
F.S.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 17. september 2007
Sigríður Lillý Baldursdóttir tekur við sem forstjóri TR
Karl Steinar Guðnason lætur af störfum sem forstjóri TR
14.9.2007
Karl Steinar hefur verið forstjóri Tryggingastofnunar í 14 ár eða frá 1. október 1993. Hann hugðist láta af störfum vegna aldurs nú á haustdögum en það varð að samkomulag að starfslok hans yrðu 1. nóvember.
Við starfinu tekur Sigríður Lillý Baldursdóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Tryggingastofnunar. Sigríður Lillý Baldursdóttir hefur starfað sem framkvæmdastjóri þróunarsviðs Tryggingastofnunar undanfarin ár. 1996-2001 var hún skrifstofustjóri í félagsmálaráðuneytinu, verkefnisstjóri í utanríkisráðuneytinu árin 1994-1996 en fram til þess tíma var hún lektor við Tækniskóla Íslands og stundakennari við Háskóla Íslands. Hún sat í Tryggingaráði frá 1987-1995. Sigríður Lillý er eðlisfræðingur að mennt og hefur stundað rannsóknir í endurhæfingarverkfræði.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 17. september 2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Greinar um kæfisvefn og fl.
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tilkynningar til félagsmanna
- Tónlist
- Tölvur og tækni
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Örorkumat og mál öryrkja
Um bloggið
Vífill, félag fólks með kæfisvefn og aðrar svefnháðar öndunartruflanir
76 dagar til jóla
Nýjustu færslur
- 17.11.2017 SÍBS viðurkenndur framhaldsfræðsluaðili
- 15.7.2016 Um kæfisvefn.
- 21.6.2016 Réttarríkið virkar seint.
- 20.6.2016 Loksins komin niðurstað í máli ÖBÍ gegn Reykjavíkurborg
- 21.10.2015 Er ekki von á hækkun fyrir lífeyrisþega.?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.10.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar