Stór hluti öryrkja við fátæktarmörk og fáum finnst það fréttnæmt.

 

Það er sama þó  kannanir sýni að bætur öryrkja dugi ekki til mannsæmandi framfærslu þá telur velferðarráðherra að það hafi verið staðið vel við bakið á öryrkjum í kreppunni.

Þegar skerðingarlögin voru sett á bætur TR þá voru þær skerðingar tímasettar og áttu að ganga til baka á þremur árum.  Velferðarráðuneytið sveik það.

Samkvæmt alþjóðlegum samningum þá má ekki skerða lágmarksframfærslu en velferðarráðuneytið gerði það samt.

Þeir öryrkjar sem leigja hjá BRYNJU-hússjóði ÖBI, eru svo lagðir í einelti af Reykjavíkurborg, með því að meina þeim að fá "SÉRSTAKAR HÚSALEIGUBÆTUR" sem aðrir lágt launaðir leigjendur fá.  Það er gert þrátt fyrir að Velferðarráðuneytið hafi úrskurðað að það sé ólögleg mismunun,  en ráðuneytið gerir svo ekkert við þessum lögbrotum Reykjavíkurborgar.

Til hvers Velferðarráðuneyti ef það getur ekki tryggt lágmarksframfærslu, samkvæmt eigin viðmiðunum, og getur ekki heldur tryggt öryrkjum sem leigja hjá BRYNJU sömu réttindi og öðrum leigjendum ?

Fyrir hvað fær Velferðarráðherra launin sín ?.....

F.S.


mbl.is Stór hluti öryrkja við fátæktarmörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vífill, félag einstaklinga með kæfisvefn.
Vífill, félag einstaklinga með kæfisvefn.
Vífill er félag einstaklinga með kæfisvefn og aðrar svefnháðar öndunartruflanir.

Félagið er sjúklingafélag og er eitt af aðildarfélögum SÍBS.

Þettta er okkar sameiginlega blogg síða og verður væntanlega mest bloggað um málefni sem okkur tengjast.

F.S.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband