Fimmtudagur, 17. maí 2007
Forseti Íslands kolefnisjafnar fyrstu einkabifreiðina á Íslandi
Forseti Íslands kolefnisjafnar fyrstu einkabifreiðina á Íslandi
Frétt af http://www.skog.is/Frettir/Includes/ShowArticle.asp?ID=1522
Þriðjudaginn 15. maí var opnuð formlega vefsíða Kolviðar www.kolvidur.is við hátíðlega athöfn í Café Flóru í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal.
Soffía Waag Árnadóttir, framkvæmdastjóri Kolviðar og Guðfinna Bjarnadóttir, formaður Kolviðar fluttu stutt ávörp og kynntu sjóðinn og hlutverk hans.
Vefsíða Kolviðar var formlega opnuð með því að herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, kolefnisjafnaði fyrstu bifreiðina á Íslandi, þegar hann kolefnisjafnaði einkabifreið sína.
Einnig voru bakhjörlum sjóðsins Kaupþingi, Orkuveitu Reykjavíkur og ríkisstjórn Íslands færðar fyrstu kolefniskvittanir sjóðsins, en Kaupþing mun kolefnisjafna allar bifreiðar og flugferðir starfsmanna fyrirtækisins, bæði innan lands og utan, Orkuveita Reykjavíkur mun kolefnisjafna allan bifreiðaflota sinn og ríkisstjórn Íslands mun kolefnisjafna bifreiðar forsætisráðuneytisins (Stjórnarráðs Íslands).
Við þetta tækifæri undirrituðu Guðfinna Bjarnadóttir og Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri samning um fyrsta landið sem verður uppgræðslusvæði Kolviðar, en það er Geitasandur á Suðurlandi.
Kolviður er sjóður sem miðar að því að binda kolefni í gróðri og jarðvegi í þeim tilgangi að draga úr styrk koldíoxiðs (CO2) í andrúmslofti. Hlutverk sjóðsins er að gera landsmönnum kleift að jafna kolefnislosun sína vegna samgangna með skógrækt.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
kolefnisjafnar fyrstu einkabifreiðina (Mynd: RF).
Jafnaðu þig í einum grænum www.kolvidur.is
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Greinar um kæfisvefn og fl.
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tilkynningar til félagsmanna
- Tónlist
- Tölvur og tækni
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Örorkumat og mál öryrkja
Um bloggið
Vífill, félag fólks með kæfisvefn og aðrar svefnháðar öndunartruflanir
33 dagar til jóla
Nýjustu færslur
- 17.11.2017 SÍBS viðurkenndur framhaldsfræðsluaðili
- 15.7.2016 Um kæfisvefn.
- 21.6.2016 Réttarríkið virkar seint.
- 20.6.2016 Loksins komin niðurstað í máli ÖBÍ gegn Reykjavíkurborg
- 21.10.2015 Er ekki von á hækkun fyrir lífeyrisþega.?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 30271
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.