Þjóðargjöf á þrautartíð Nýja hjartaþræðingatækið tekið í notkun

 

LHS Guðmundur Bjarnason fyrrverandi heilbrigðisráðherra flutti ávarp    12

 Guðmundur Bjarnason fyrrverandi heilbrigðisráðherra flutti ávarp
en hann er formaður Hjartaheilla.

Núverandi heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, við hlið hans en lengst til hægri eru Kristján Eyjólfsson yfirlæknir hjartaþræðinga og Hulda Gunnlaugsdóttir forstjóri Landspítala  

Þriðja hjartaþræðingartækið hefur verið tekið í notkun á hjartaþræðingarstofu Landspítala. Brýn þörf hefur verið á þessu tæki bæði vegna nauðsynlegrar endurnýjunar og sívaxandi starfsemi. Nú standa vonir til að biðlistar eftir hjartaþræðingum og kransæðavíkkunum heyri brátt sögunni til.

  Árið 2007 voru tæplega 1800 þræðingar og tæplega 700 víkkanir á hjartaþræðingarstofu Landspítala. Nærri lætur að þeim fjölda sé þegar náð fyrir þetta ár. Hjartaþræðingar eru nú á tveimur stofum og sú þriðja er aðallega notuð fyrir raflífeðlisfræðilegar rannsóknir og meðferð, ígræðslur gangráða o.fl. 

 

Byrjað var að nota nýju hjartaþræðingarstofuna snemma í nóvember og hefur á fimmta tug sjúklinga verið þræddur þar. Stofan er sambyggð núverandi tveimur hjartaþræðingarstofum á hjartaþræðingareiningu hjartadeildar á jarðhæð á Landspítala Hringbraut, byggð inn í húsnæði sem verið hefur hluti af vörumóttöku spítalans. Aðstaða rýmkar með nýju stofunni og tækjabúnaður batnar til að sinna hjartaþræðingum en margvíslegur búnaður var keyptur fyrir utan hjartaþræðingartækið sjálft. Gæði rannsókna aukast vegna betri mynda og annarra upplýsinga og samhæfing alls búnaðar gerir vinnu mun léttari en áður var.

  

Kostnaður og fjármögnun tækjabúnaðar:

  

Hjartaheillum, landssamtökum hjartasjúklinga og Gjafa- og styrktarsjóði Jónínu S. Gísladóttur má öðrum fremur þakka að þriðja hjartaþræðingarstofan er komin í notkun, ríkulega búin nýjustu og bestu tækjum. Framlög samtakanna og sjóðsins skipta þar sköpum. Áætlaður heildarkostnaður við nýju hjartaþræðingarstofuna nemur nú um 220 milljónum króna (miðað við gengi í dag) en af þeirri upphæð greiðir Landspítali kostnað við breytingu á húsnæði sem er áætlaður um 5 milljónir króna. Tækjabúnaðurinn er að langmestu leyti keyptur fyrir gjafafé og má að sönnu telja það þjóðargjöf á þrautartíð.

Gjafa- og styrktarsjóður Jónínu S. Gísladóttur var stofnaður árið 2001 með 200 milljóna króna framlagi Jónínu í sjóð til að efla hjartalækningar á Landspítala. Síðan hefur sjóðurinn stutt hjartalækningarnar ríkulega með fjárframlögum, þar á meðal vegna kaupa á hjartaþræðingartæki árið 2001.

  

Hjartaheillum, landssamtökum hjartasjúklinga   eiga 25 ára afmæli á þessu ári og minnast tímamótanna meðal annars með því að styrkja kaup á hjartaþræðingartækinu og nauðsynlegum fylgibúnaði. Samtökin leggja fram 25 milljónir og ætla þar að auki að efna til landssöfnunar snemma á næsta ári fyrir átak til stuðnings hjartalækningum. Takmark Hjartaheilla hefur verið að safna 50 milljónum króna á afmælisárinu og rennur allt það fé sem safnast umfram áðurnefndar 25 milljónir einnig til hjartalækninga á Landspítala. Átakið felst í endurnýjun búnaðar og kerfis fyrir hjartalækningar og hefur kostnaður verið metinn um 300 milljónir króna. Búið er að safna fyrir um það bil helmingi þeirrar upphæðar.

 

Sjá nánar: http://www4.landspitali.is/lsh_ytri.nsf/htmlpages/index.html

Og http://www.hjartaheill.is/index.php?option=com_content&task=view&id=632&Itemid=101 

( Innsett og undirstrikað F.S.)

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vífill, félag einstaklinga með kæfisvefn.
Vífill, félag einstaklinga með kæfisvefn.
Vífill er félag einstaklinga með kæfisvefn og aðrar svefnháðar öndunartruflanir.

Félagið er sjúklingafélag og er eitt af aðildarfélögum SÍBS.

Þettta er okkar sameiginlega blogg síða og verður væntanlega mest bloggað um málefni sem okkur tengjast.

F.S.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband