Þriðjudagur, 18. ágúst 2009
Lagt til að lágmarkslífeyrir verði 186 þúsund á mánuði
Vísir, 18. ágú. 2009 05:15
http://www.visir.is/article/20090818/FRETTIR01/557249197/-1
Huga skal að lífskjaratryggingu", þannig að enginn fái lægri upphæð en lágmarksupphæð lífeyris til framfærslu, 186.000 krónur. Auka þarf fjárhagsaðstoð sveitarfélaga svo þetta geti orðið.
Einnig ættu atvinnulausir að greiða það sama fyrir heilbrigðisþjónustu og aldraðir og öryrkjar greiða. Þeir ættu að fá ókeypis í sund, og frían aðgang að listasöfnum og íþróttaviðburðum.
Svo segir í skýrslu sem nefnd um sálfélagsleg viðbrögð við kreppunni skilaði nýlega af sér til heilbrigðisráðherra.
Ráðherrann, Ögmundur Jónasson, er ánægður með skýrsluna, sem miðar við reynslu Finna af síðustu kreppu þeirra.
Lærdómur þeirra var að þeir hefðu gengið of langt í að draga úr útgjöldum til velferðarmála og það hefði í sjálfu sér framlengt krísuna," segir Ögmundur. Skýrslan sé því brýning fyrir okkur um að gæta hagsmuna þeirra sem lakast standi.
Spurður hvort farið verði eftir ábendingunum, segir hann: Auðvitað eigum við að taka þessi varnaðarorð alvarlega og setja okkur að markmiði að hlíta þeim."
Í skýrslunni segir að nauðsynlegt sé að nýta strax allar leiðir til að vinna gegn neikvæðum afleiðingum kreppunnar á heilsu og félagslega stöðu fólks, til að forðast heilsubrest og hamla þannig gegn auknum útgjöldum á sviði heilbrigðis- og félagsmála.
Íslendingar fá ekki annað tækifæri til að kanna hvort skynsamlegra hefði verið að bregðast öðruvísi við hér á landi eftir fimm ár. Það verður of seint," segir í niðurstöðum nefndarinnar.
Í skýrslunni er lýst yfir ánægju með stofnun Velferðarvaktar, til að fylgjast með afleiðingum hrunsins á einstaklinga og fjölskyldur.
Mikilvægt sé að tryggja sterka heilsugæslu, þótt minna fé sé til reiðu. Þá skal efla mæðra- og ungbarnavernd og setja á fót virknimiðstöðvar" þar sem fólk getur komið til að halda festu í daglegu lífi".
Hún telur að finnsk stjórnvöld hafi í sinni kreppu vanmetið síðari sálfélagsleg eftirköst" hennar.
Finnskir sérfræðingar bentu nefndinni á að það sé ekki aðeins mannúðlegt að grípa til slíkra aðgerða, það sé einnig ódýrara en að gera það ekki.
Nefndin var skipuð af fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni. klemens@frettabladid.is
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Kjaramál, Stjórnmál og samfélag, Örorkumat og mál öryrkja | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Greinar um kæfisvefn og fl.
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tilkynningar til félagsmanna
- Tónlist
- Tölvur og tækni
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Örorkumat og mál öryrkja
Um bloggið
Vífill, félag fólks með kæfisvefn og aðrar svefnháðar öndunartruflanir
1 dagur til jóla
Nýjustu færslur
- 17.11.2017 SÍBS viðurkenndur framhaldsfræðsluaðili
- 15.7.2016 Um kæfisvefn.
- 21.6.2016 Réttarríkið virkar seint.
- 20.6.2016 Loksins komin niðurstað í máli ÖBÍ gegn Reykjavíkurborg
- 21.10.2015 Er ekki von á hækkun fyrir lífeyrisþega.?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.