Skerðingar á kjörum öryrkja

Fréttablaðið, 03. okt. 2009 06:

http://www.visir.is/article/20091003/SKODANIR03/517700326

Lilja Þorgeirsdóttir skrifar um velferðarmál

 

Lilja Þorgeirsdóttir

 

Lög um ráðstafanir í ríkisfjármálum voru samþykkt á Alþingi þann 29. júní sl. Breytingarnar voru framkvæmdar til að ná fram sparnaði í ríkisfjármálum á methraða. Tveir dagar liðu frá því að lögin voru samþykkt þar til fjöldi öryrkja og ellilífeyrisþega varð fyrir skerðingum á bótum almannatrygginga.

 

Lögin fólu m.a. í sér að tekjutengingar jukust þannig að bætur almannatrygginga skertust meira og fyrr en áður. Þá var einnig brotið blað í sögunni þegar lífeyrissjóðstekjur tóku að skerða „grunnlífeyri" og einnig bótaflokkinn „aldurstengd örorkuuppbót". Breytingin gat jafnframt leitt til þess að fólk missti ákveðin réttindi sem þeim fylgdu s.s. niðurgreiðslu á sjúkraþjálfun, tannlæknakostnað, iðjuþjálfun o.fl.
ÖBÍ mótmælti því harðlega að ráðist væri á almannatryggingakerfið með þessum hætti en stór hópur örorkulífeyrisþega varð fyrir talsverðum skerðingum á tekjum með nánast engum fyrirvara. Dæmi voru um að skerðingarnar væru hlutfallslega meiri en hátekjuskatturinn sem lagður var á launþega með yfir 700.000 kr. í launatekjur á mánuði.

 

Það er öllum ljóst að erfiðleikar blasa við þjóðinni í kjölfar bankahrunsins. Forsætisráðherra tilkynnti að skera þyrfti niður í ríkisútgjöldum með því að lækka hæstu launin, setja á hátekjuskatt og endurskoða fastlaunasamninga hjá ríkisstarfsmönnum. En tekið var sérstaklega fram að ekki yrði hreyft við launum undir 400.000 kr. á mánuði. Sú ákvörðun er skiljanleg, enda hafa þeir sem eru með hærri tekjur að öllum líkindum meira svigrúm til að taka á sig þyngri byrðar en hinir. Því kom það á óvart þegar bætur örorkulífeyrisþega voru skertar, þar sem tekjur flestra þeirra eru vel undir þessum mörkum.

 

Skerðingin á bótum almannatrygginga hófst hjá örorkulífeyrisþegum sem búa með öðrum við tæpar 160.000 kr. í heildartekjur á mánuði fyrir skatt og hjá þeim sem búa einir hófst skerðingin við rúmar 180.000 kr. á mánuði. Í dæmum sem starfsfólk ÖBÍ reiknaði út voru skerðingar af heildartekjum öryrkja, þ.e. bætur almannatrygginga og greiðslur úr lífeyrissjóði, í prósentum talið á bilinu 0,1-7,7%.

 

Þessar skerðingar koma sérstaklega illa við þennan hóp sem hefur litla sem enga möguleika á að auka tekjur sínar sökum fötlunar eða sjúkdóma. Hafa ber í huga að bætur lífeyrisþega eru framfærsla, oft á tíðum, til langs tíma, hjá mörgum allt lífið. Einnig er fólk með örorkumat að jafnaði með hærri útgjöld en aðrir vegna lyfja- og lækniskostnaðar, sjúkra- og iðjuþjálfunar o.fl. en þessi útgjöld hafa hækkað verulega undanfarið. Jafnframt hefur fjöldi lífeyrissjóða lækkað greiðslur til öryrkja um 7-10% í kjölfar bankahrunsins. Þá varð meirihluti lífeyrisþega fyrir allt að 10% skerðingu á bótum almannatrygginga 1. janúar sl. vegna bráðabirgðaákvæðis í lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum.

 

Slíkar skerðingar eru ómannúðlegar. Það er sérstaklega mikilvægt á tímum kreppu og niðurskurðar að standa vörð um þá sem standa höllum fæti í samfélaginu og hafa lægstu tekjurnar. Langtímafátækt hefur slæm áhrif á heilsu fólks, sem getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér og eykur kostnað ríkisins til lengri tíma litið. Því er það óásættanlegt að öryrkjar og ellilífeyrisþegar taki á sig hlutfallslega meiri byrðar en aðrir. „Skjaldborgin" um heimilin í landinu virðist ekki eiga að ná til lífeyrisþega þrátt fyrir að þeir séu, eins og aðrir, með heimili, börn á sínu framfæri og aðrar skuldbindingar eins og aðrir

Starfsfólk skrifstofu ÖBÍ fær reglulega símtöl frá öryrkjum sem eru ósáttir við sitt hlutskipti. Margir hverjir hafa búið við kröpp kjör í mörg ár og eiga sérstaklega erfitt með að láta enda ná saman í kreppunni. Lífeyrisþegar urðu líka fyrir áföllum í hruninu. Margir hafa tapað sparifé og hlutabréf urðu að engu. Húsnæðis- og bílalán þeirra hafa líka hækkað.
Þeir stjórnmálaflokkar sem nú eru við völd lýstu því yfir fyrir síðustu kosningar að þeir ætluðu að verja velferðarkerfið. Þau loforð hafa ekki staðist nema síður sé. ÖBÍ krefst þess að stjórnvöld afturkalli þær skerðingar sem lífeyrisþegar urðu fyrir á þessu ári. Fjármálakreppan er því miður staðreynd og spara þarf í ríkisfjármálum, en það er ekki sanngjarnt að öryrkjar taki á sig hlutfallslega þyngri byrðar en aðrir, nú þegar síst skyldi. Það er hvorki stjórnvöldum né þjóðinni til sóma.

 

Höfundur er framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands.

innsett F.S. 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þakka þer þennann frábæra pistil LILJA  .Þetta eru orð i tima töluð og eg hef verið að vellta fyrir mer hvert eg ætti að leita ,akkurat útaf fyrnefndum ástæum  Lifeyririnn minn er buin að lækka um 35 000 þus, frá hruni fyrir ari  og nu veit eg ekki hvað eg gert til að láta endana na saman lengur EG ER ÞÓ HEPPIN að þvi leyti að eg hef mun ódyrarahusnæði en margir ,En það er sama , eg er einstæð og verð að hafa bil til að bera mig um , sækja i mat og ef eg þarf til læknis eða annað , Eg hef á siðasta ári ekkert geta látið eftir mer að fara eða gera mer til ánægju  , en engu siður trui eg að margir hafi það mikið verra en eg ,EN VIÐ VERÐUM AÐ GERA ALLT SEM VIÐ GETUM til að na samkomulagi við stjornvöld útaf okkar mÁLU  Við fengum ekkii kauphækkunina i sumar  og það er skelfilegt  , Svo nu verður að reyna eitthvað  Og við verðum að reyna hjalpast að ef það dugaði betur --allir öryrkjar , en er hræddum að margir þori ekkert að segja

VINSAML LOFAÐU MER AÐ VITA EF EG GÆTI EITTHVAÐ GERT ,mEÐ VINSEMD OG ÞAKKLÆTI  Ragnhildur H Johannesd

Ragnhildur H (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 23:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vífill, félag einstaklinga með kæfisvefn.
Vífill, félag einstaklinga með kæfisvefn.
Vífill er félag einstaklinga með kæfisvefn og aðrar svefnháðar öndunartruflanir.

Félagið er sjúklingafélag og er eitt af aðildarfélögum SÍBS.

Þettta er okkar sameiginlega blogg síða og verður væntanlega mest bloggað um málefni sem okkur tengjast.

F.S.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband