Föstudagur, 6. janúar 2012
Minni kostnaður vegna tauga og geðlyfja 2010
Það er endalaust verið að skera niður í þáttöku ríkisins í lyfjakostnaði.
Er það gott að greiðsluþáttaka ríkisins í þunglyndislyfjum hafi minnkað ?
Þeir sem þurfa á þessum lyfjum að halda eiga oft sín lífsgæiði undir því að fá lyfin sín. Hver er sparnaðurinn ef þetta fólk þarf að leggjast inn á sjúkrahús.
innfært F.S.
![]() |
Mikill sparnaður í þunglyndislyfjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 4. janúar 2012
Hvaða valkosti hefur öryrki við þessar aðstæður ?
Lítið er eftir af sjálfsvirðingu margra öryrkja. Þeir hafa nánast ekkert val um þjónustu sem þeir fá, búið er að skerða fjárhasstöðu þeirra svo að nánast ómögulegt er að lifa með reysn.
Vonandi verður orðið við hans óskum um hvaðan hann fær sína þjónustu og honum skapað ánægjulegra líf.
Það verður að vera val öryrkjans, að sem mestu leiti, hvernig þjónustu hann fær og hver veitir honum þjónustuna.
innsett: FS
![]() |
Hefur mótmælasvelti á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 30. desember 2011
Aðför ríkisins að lífeyrisþegum.
Ég skil ekki af hverju verkalýðshreyfingin stendur ekki betur vörð um lífeyrissjóðina og lífeyrisþegana.
Það var ekki tilgangur sjóðanna að vera til að spara ríkinu útgjöld heldur áttu sjóðirnir að bæta afkomu lífeyrisþeganna. Greiðslur frá lífeyrissjóðunum áttu að vera viðbót við greiðslur frá TR.
Örorkulífeyrisþegar þurfa að stofna sérstakar deildir innan stéttarfélaganna til þess að gæta sinna hagsmuna. Þetta þarf að vera rætt í tengslum við gerð kjarasamninga til að stöðva þetta rán ríkisins.
F.S.
![]() |
Margir fá ekkert frá TR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 3. desember 2011
Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2011
Verðlaun verða veitt laugardaginn 3. desember næstkomandi, kl.14.00-16.00 í Salnum í Kópavogi.
Lokið hefur verið við úrvinnslu úr tilnefningum þetta árið. Alls bárust 33 tilnefningar. Þrír eru tilnefndir í hverjum flokki.
Dómnefnd vinnur nú að því að velja verðlaunahafana sjálfa í hverjum flokki, það er í flokki einstaklinga, flokki fyrirtækja/stofnana og flokknum umfjöllun/kynning.
Verðlaunin eru veitt þeim sem hafa stuðlað að jafnrétti, sjálfstæðu lífi fatlaðs fólks og einu samfélagi fyrir alla.
Á alþjóðadegi fatlaðs fólks, þann 3. desember næstkomandi verða verðlaunin afhent í 5 sinn.
Tilnefndir til Hvatningarverðlauna ÖBÍ 2011
Í ár bárust 33 tilnefningar. Eftirtaldir hlutu tilnefningu,
Í flokki einstaklinga:
- Bergþór Grétar Böðvarsson, fyrir að stuðla að jákvæðri og uppbyggilegri umræðu um geðsjúkdóma á Íslandi.
- Guðmundur Felix Grétarsson, fyrir óbilandi þrek og að sýna hvað skopskyn getur verið sterkt baráttutæki.
- Helga Kristín Olsen, fyrir frumkvöðlastarf í skautakennslu fyrir fatlað fólk.
- Hestamannafélagið Hörður, fyrir frumkvöðlastarf í hestaíþróttum fatlaðra barna og unglinga.
- Hringsjá náms- og starfsendurhæfing, fyrir fjölbreytt námsúrval og sjálfseflingu fólks sem vill auka færni sína.
- Æfingastöðin, fyrir að efla börn og fjölskyldur þeirra og stuðla að virkri þátttöku þeirra í samfélaginu.
- Jón Stefánsson kórstjóri og kór Langholtskirkju, fyrir metnaðarfulla listsköpun í samstarfi við Táknmálskórinn.
- List án landamæra, fyrir að koma list fólks með fötlun á framfæri og stuðla að samstarfi fatlaðs og ófatlaðs listafólks.
- Umsjónarfólk sjónvarpsþáttarins Með okkar augum, fyrir frumkvöðlastarf í íslenskri dagskrárgerð.
innsett F.S.
Örorkumat og mál öryrkja | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 23. nóvember 2011
Ályktun Öryrkjabandalags Íslands.
Fundur aðalstjórnar Öryrkjabandalags Íslands, haldinn 23. nóvember 2011, mótmælir harðlega þeim alvarlegu skerðingum á kjörum öryrkja sem fyrirhugaðar eru af hálfu Ríkisstjórnar Íslands og birtast m.a. í frumvarpsdrögum Velferðarráðuneytisins. Öryrkjabandalagið krefst þess að ríkisstjórnin hverfi þegar í stað frá áformum sínum um enn frekari árásir á lífskjör öryrkja fjórða árið í röð.
Örykjabandalagið hvetur öryrkja og aðra landsmenn til að fylgjast grannt með framvindu mála næstu daga og vikur.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjórir ÖBÍ í gsm. 869 0224.
innsett: FS
Örorkumat og mál öryrkja | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 10. nóvember 2011
Eru leiðtogar ASÍ að berjast fyrir eigin kjarabótum eða kjaraskerðingu fyrir aðra launamenn ??
Ég held að ASÍ verði að fara að skoða eigin vinnubrögð í kjarabaráttunni. Það þarf að auka greiðslur í lífeyrissjóði ASÍ til að bæta lífeyrisréttindi þeirra fólks.
Svo er stóra málið að það þarf að koma í veg fyrir að ríkið ræni lífeyrisgreiðslum lífeyrissjóðanna.
Nú skerða greiðslur lífeyrissjóðanna bætur Tryggingastofnunar Ríkisins svo að áunnin lífeyrisréttindi ganga, að stórum hluta, til ríkisins í gegnum þessar skerðingar.
Verkalíðsfélögin öll verða að vinna betur að réttindum lífeyrisþega og koma í veg fyrir þessar skerðingar.
ASÍ á ekki að öfundast út í lífeyrisréttindi annarra heldur vinna að því að bæta lífeyrisréttindi sinna félagsmanna.
Til þess eiga þeir að nota kjarasamningana.
F.S.
![]() |
Vilja afnema ríkisábyrgð á lífeyrisréttindum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Örorkumat og mál öryrkja | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 10. nóvember 2011
Hvernig á að leysa rekstrarvanda verndaðra vinnustaða ?
Nú er blindravinnustofan í vanda og niðurskurður á framlagi ríkisins er að gera þeim erfitt fyrir.
Á samdráttartímum eru vinnustaðir að fækka fólki og þá missa fatlaðir oft frekar vinnuna en aðrir. Því er enn mikilvægara að tryggja rekstur verndaðra vinnustaða og atvinnu þeirra fötluðu einstaklinga sem vinna þar.
Ríkið fær virðisaukaskatt af seldum vörum og svo skatta af 30 einstaklingum sem vinna þar.
Stjórnvöld verða að huga betur að þessum vinnustöðum og tryggja vinnu og velferð fötluðu einstaklinganna sem vinna þar.
F.S.
![]() |
Blindravinnustofan í uppnámi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Örorkumat og mál öryrkja | Breytt s.d. kl. 03:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 25. október 2011
Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands
Frétt af: http://www.velferdarraduneyti.is/frettir-vel/nr/33060
24/10/2011
Í byrjun næsta árs verða lágmarksbætur lífeyrisþega 203.000 krónur og hafa þá hækkað um 61% frá árinu 2007. Þá hafa útgjöld almannatrygginga sem hlutfall af tekjum ríkissjóðs farið úr 9,5% árið 2006 í 13,1% árið 2012 miðað við fyrirliggjandi fjárlagafrumvarp. Þetta kom meðal annars fram í ávarpi Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra á aðalfundi Öryrkjabandalags Íslands síðastliðinn laugardag.
Velferðarráðherra kom víða við í ávarpi sínu. Hann sagði mikilvægt mál hafa verið lögfest á Alþingi nú í haust þegar samþykkt voru lög sem koma í veg fyrir gagnkvæmar skerðingar örorkulífeyris úr lífeyrissjóðum og örorkulífeyris frá almannatryggingum. Með lagabreytingunni er eytt þeirri víxlverkun sem verið hefur um árabil í samspili þessara tveggja meginstoða almannatryggingakerfisins og örorkulífeyrisþegar munu nú sjálfir njóta að fullu þeirra hækkana sem verða á greiðslum almannatrygginga eða örorkulífeyri lífeyrissjóðanna.
Í þrengingum okkar frá hruni hafa stjórnvöld alltaf lagt áherslu á að útfærslur aðhaldsaðgerða og niðurskurðar útgjalda hins opinbera bitni sem allra minnst á hag heimilanna og velferðarþjónustu, einkum í félags- og heilbrigðismálum, og að félagslegt öryggi allra sé tryggt. Grunnþjónustan hefur verið varin eins og kostur er og þau verkefni sem samstaða er um að ríkið sinni í þágu samfélagsins.
Það hefur líka sýnt sig að aðgerðir stjórnvalda í skattamálum og þær breytingar sem gerðar hafa verið á skattkerfinu hafa dregið úr álögum á þá tekjulægstu en fært skattbyrðina í auknum mæli á herðar þeim sem hærri tekjur hafa.
Ráðherra ræddi einnig um endurskoðun almannatryggingakerfisins, stefnumótun í húsnæðismálum og fyrirhugaða upptöku húsnæðisbóta í stað vaxtabóta og húsaleigubóta. Þá talaði hann um frumvarp til breytinga á greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði sem verður lagt fram á Alþingi á næstunni:
Ég er sannfærður um að fólk muni fljótt sjá að þetta kerfi er bæði einfaldara og réttlátara en það sem við búum við núna, af því að það mismunar ekki sjúklingum eftir því hvers eðlis veikindi þeirra eru og af því að það er byggt upp til þess að draga úr kostnaði hjá þeim sem mest þurfa á lyfjum að halda vegna veikinda sinna. Sambærilegar breytingar tel ég nauðsynlegt að gera varðandi greiðsluþátttöku fólks fyrir þjónustu í heilbrigðiskerfinu öllu, einfaldlega af því að gildandi kerfi styður ekki nógu vel við bakið á þeim sem helst þurfa á því að halda.
innsett F.S.
Mánudagur, 24. október 2011
Það þarf alltaf að vera að "vakta" aðgerðir stjórnvalda gagnvart öryrkjum.
Þetta er ekki ný umræða. Aftur og aftur eru skipaðar nefndir til að skoða þessi mál, með það að markmiði að einfalda kerfið en samt tryggja afkomu öryrkja. Gallinn við þetta allt er að þetta má ekki kosta neitt. Þetta var líka svona fyrir bankahrun svo að þetta er ekki hruninu að kenna. Samt hefur ímislegt mjakast áleiðis en alltaf eru stjórnvöld að líta í baksýnisspegilinn og skoða hvernig hægt sé að lækka kostnaðinn.
19. ágúst 2009 sendi aðalstjórn ÖBÍ frá sér umsögn um skírslu nefndar um breytingar á lífeyriskerfinu: Nýskipan almannatrygginga
Þar segir ÖBÍ m.a.
"Að lokum vill ÖBÍ leggja áherslu á nokkur atriði sem skipta máli við einföldunina:
Aldurstengd örorka.
Bótaflokkurinn aldurstengd örorka er afar mikilvægur bótaflokkur fyrir þá sem fæðast eða fatlast snemma á lífsleiðinni og hafa ekki náð að vinna sér inn réttindi í lífeyrissjóðum. Þennan hóp verður að passa sérstaklega í nýju almannatryggingakerfi. Það má með mörgum rökum halda því fram að fyrrgreindur hópur eigi að fá hærri greiðslur úr almannatryggingum en aðrir vegna stöðu sinnar. Þetta kemur fram í skýrslunni en við viljum leggja sérstaka áherslu á það. ÖBÍ leggur jafnframt áherslu á að aldurstengd örorka skerðist ekki vegna tekna og haldi áfram eftir 67 ára aldur."
Af sama tilefni kom 31. ágúst 2009 frá Þroskahjálp:
"Aldurstengd uppbót á lífeyri.
Landssamtökin Þroskahjálp vilja standa sérstaklega vörð um þennan bótaflokk þar sem margir af skjólstæðingum samtakanna hafa búið við fötlun frá fæðingu. Tilkoma þessa bótaflokks var mikið réttlætismál á sínum tíma og tilraun til að jafna ævikjör. Til að svo geti orðið þarf aldurstengda uppbótin að koma sem viðbót við lágmarksframfærslu. Með tilkomu hærra frítekjumarks vegna lífeyristekna er ennþá meira réttlæti í aldurstengdri uppbót sem kemur þeim mest til góða sem hafa litlar sem engar greiðslur úr lífeyrissjóðum".
Það er ekki langt síðan þessi samtök voru að álykta um þetta og fleyra.
Enn er full ástæða til að "vakta" skerðingarhugmyndir stjórnvalda.
Vf: F.S.
![]() |
Breyta aldurstengdri örorku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 25.10.2011 kl. 02:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 23. október 2011
Guðmundur Magnússon endurkjörinn formaður ÖBÍ.
http://www.obi.is/utgafa/frettir/nr/941
22.10.2011
Á aðalfundi ÖBÍ sem var haldinn á Grand hóteli Reykjavík í dag, 22. október 2011. Á fundinum var Guðmundur Magnússon endurkjörinn formaður bandalagsins til tveggja ára.
Grétar Pétur Geirsson var endurkjörinn gjaldkeri ÖBÍ til tveggja ára.
Kosning var um 2 meðstjórnendur til tveggja ára, þar sem þau Sigríður Jóhannsdóttir og Sigurður Þór Sigurðsson gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi starfa. Fjórir gáfu kost á sér til þessara embætta, þær Ellen Calmon frá ADHD samtökunum og Klara Geirsdóttir frá Félagi CP á Íslandi og fengu yfirburðar kosningu.
Þrír varamenn til eins árs voru kjörnir þau Jórunn Sörensen frá Félagi nýrnasjúkra, Guðmundur S. Johnsen frá Félagi lesblindra og Frímann Sigurnýasson frá SÍBS. Fimm einstaklingar buðu sig fram í varamannskjörinu.
Í 5 manna kjörnefnd gaf Guðný Guðnadóttir ekki kost á sér til áframhaldandi starfa og Guðjón Sigurðsson hafði sagt sig áður úr kjörnefnd. Þrír fulltrúa í nefndinni gáfu kost á sér til endurkjörs. Þau Gísli Helgason, Sigurður Rúnar Sigursjónsson og Sigurbjörg Ármannsdóttir. Ný í kjörnefnd eru Dagný Erna Lárusdóttir frá SÍBS og Jón Þorkelsson frá Stómasamtökunum.
Í 5 manna laganefnd höfðu 2 nefndarmenn sagt sig úr nefndinni og að auki gaf Sigríður Jóhannsdóttir ekki kost á sér til endurkjörs. Tvei fulltrúar gáfu kost á sér til endurkjörs þeir Guðmundu S. Johnsen, Félagi lesblindra og Björn Hallgrímsson frá SÍBS. Nýir í laganefnd eru Gísli Helgason frá Blindarvinafélagi Íslands, Örn Ólafsson frá Félagi CP á Íslandi og Guðbjörn Jónsson frá Parkinsonsamtökunum. Tvær ályktanir voru samþykktar á fundinum.
- Ályktun um yfirfærslu þjónustu fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga.
- Ályktun aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands vegna frumvarps ríkisstjórnarinnar til fjárlaga íslenska ríkisins fyrir árið 2012.
Innsett F.S.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Greinar um kæfisvefn og fl.
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tilkynningar til félagsmanna
- Tónlist
- Tölvur og tækni
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Örorkumat og mál öryrkja
Um bloggið
Vífill, félag fólks með kæfisvefn og aðrar svefnháðar öndunartruflanir
246 dagar til jóla
Nýjustu færslur
- 17.11.2017 SÍBS viðurkenndur framhaldsfræðsluaðili
- 15.7.2016 Um kæfisvefn.
- 21.6.2016 Réttarríkið virkar seint.
- 20.6.2016 Loksins komin niðurstað í máli ÖBÍ gegn Reykjavíkurborg
- 21.10.2015 Er ekki von á hækkun fyrir lífeyrisþega.?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar