Hér er á ferðinni mjög stórt og mikilvægt mál.

Viðbrögð Gylfa Arnbjörnssonar eru honum til skammar.  Hann er framkvæmdastjóri ASÍ og er að vinna að þessu máli til að létta örorkulífeyrisgreiðslum að lífeyrissjóðunum og koma þaim yfir á Áfallatryggingasjóð, fyrstu fimm árin. 

Svo er það alveg rétt sem Sigursteinn Másson bendir á að þessi sjóður skapar mismunun í samfélaginu. 

Eins og ég sé þetta þá eru tillögur um ASÍ og SA um svokallaðan áfallatryggingasjóð bein afleiðing af tillögum “Örorkumatsnefndar forsætisráðherra”, sem m.a. ÖBÍ átti fulltrúa í og samþykkti niðurstöður nefndarinnar og fulltrúi þeirra skrifaði undir fyrir hönd ÖBÍ.Það sem sagt er um “nýtt endurhæfingarkerfi fyrir öryrkja” í þessu sambandi er bara gulrót til að selja hugmyndina um breytt lífeyriskerfi  og  stofnun áfallatryggingasjóð.. 

Starfsgreinasambandið ( SA )hefur áður sagt að : 

“Eigi hugmyndir ,,örorkumatsnefndar” forsætisráðherra að ná fram að ganga, þarf að breyta bæði hlutverki sjúkrasjóða aðildarfélaga SGS og lífeyrissjóðanna”   

Það er því ljóst að tillögur “Örorkumatsnefndar forsætisráðherra”hafa nú leitt til tillagna þeirra sem hér er verið að ræða um.  

Ekki eru öll aðildarfélög Starfsgreinasambandsins sammála stefnu sambandsins og tillögum þess og Samtaka Atvinnulífsins.Umræður um þessar tillögur hafa verið mjög litlar, þangað til nú síðustu vikurnar þegar verið er að kynna tillögurnr innan aðildafélaga Starfsgreinasambandsins ( SA ).  

Í þessu sambandi er talað um að stórauka þurfi endurhæfingu.  Það er alveg rétt, en það eru ekki ní tíðindi. Það var ein af forsendum frumvarpsins 1999 að endurhæfingin yrði stóraukin.Það dugði ekki til að Alþyngi legði meiri peninga í endurhæfinguna   

Við verðum að muna að þetta ferli; Örorkumatsnefndi forsætisráðherra og tillögur ASÍ og SA um áfallatryggingasjóð fer af stað til að bæta hag lífeyrissjóðanna með því að minnka örorkubótaþáttinn í lífeyrisgreiðslum lífeyrissjóðanna.

Tetta er samhangandi mál eins og kemur t.d. fram í tilvitnun í álit Starfsgreinasambandsins hér ofar. 

 

Sjá nánar á:

http://vifill.blog.is/blog/vifill/entry/329688

 

http://vifill.blog.is/blog/vifill/entry/327511  

 

http://vifill.blog.is/blog/vifill/entry/300871

 

http://vifill.blog.is/blog/vifill/entry/183806

 

Ég minni síðan á undirskriftalistann og vona að sem flestir kvitti á hann. 

F.S.

 
mbl.is Öryrkjar sjálfum sér verstir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Vífill, félag einstaklinga með kæfisvefn.
Vífill, félag einstaklinga með kæfisvefn.
Vífill er félag einstaklinga með kæfisvefn og aðrar svefnháðar öndunartruflanir.

Félagið er sjúklingafélag og er eitt af aðildarfélögum SÍBS.

Þettta er okkar sameiginlega blogg síða og verður væntanlega mest bloggað um málefni sem okkur tengjast.

F.S.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband